Bonjour..!
23.05.2006 00:36:32 / helgai

Obbosí:p

Hæ hobbsasíí=) Ég er ekki allveg að nenna þessu blogg dæmi:p en jæja skal reyna að skrifa e-h =p Ég er samt algjer bolla... sit hér og er að borða camenbert og ritz kex og hundurinn minn situr bara hérna, slefar og bíður eftir að ég gefi honum bita=o. Eg er alltaf að spá og spekúlera hvenær ég eigi að drífa í því að fara út... samt er alltaf e-h sem dregur mig frá því.. eins og ég gæti farið út núna í haust.. en þá er það útskriftarferðin sem ég vil bara ALLS ekki missa af... svo er spurning með það að fara ekki í skólann í haust, vinna, spara pening, fara í útskriftarferð og síðan e-h út í jan-feb.. eiga þá nægan pening til að hafa með mér út.. þetta er allt frekar mikið vafamál.. en ég vil bara komast út! =) Svo einfalt er það...! Er í fimm daga fríi og bara næsheit að liggja uppí rúmi fram að hádegi, horfá sjónvarpið og hugsa um þá sem eru að vinna úti í þessum skítakulda... mmmm... þá er gott að liggja uppí rúmi..;) Fer samt að vinna á miðvikudagsmorgun.. það er allt í lagi:) Pæliði.. ég er bara að vinna 15 daga í mánuði... frekar næs sko=) Þetta er komið gott í bili... Sjámst...=)

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 23:03:03 / helgai

Lúxemborg

Hæ hó.. vildi bara aðeins segja ykkur að
 ég er að fara út til Fanneyjar í nótt!!
Langaði bara aðeins að deila þessu með ykkur sem nennið að bíða eftir nýrri færslu
frá mér:)
Er samt orðin smá veik en ég verð ekkert veik lengi:D
Eg lofa engu en ég skal samt reyna að koma með ferðasögu þegar ég kem heim.. en ég er skilurru farin að klára að pakka og reyna að leggja mig.. okeiii?? :haha:

Bara svona til að nudda salti í sárin þá er 18 stiga hiti þarna úti.. thíhíhí8):lol:

Sjámst! ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 10:45:31 / helgai

Bienos dias!

Hola people! :)
Helgin nýafstiðin og hún var bara mjööög fín sko:) Var á árshátíð Olís á föstudaginn. Hún var haldin á Hótel Sögu, og mér leið bara eins og royalty. Eg fékk gefins kokteil á barnum, frá sæta barþjóninum. Bergþóra varð allveg brjáluð... I wonder why Bergþóra....:lol:
Svo fórum ég, Bergþóra og Elín Ólöf niður á Oliver og viti menn, var ekki sæti barþjónninn að vinna líka á barnum á Oliver.. Og ég held ég hafi aldrei séð jafn marga sæta stráka á Oliver.. maður bara slefaði og slefaði8| Fyrir utan það var bæjarferðin eiginlega ekkert spes, hef allveg skemmt mér betur í bænum nema það að það kom gaur og var e-h að reyna við Elínu og ég sver það, hann dansaði hommalegra heldur en Páll Óskar.. hann var samt heví fyndinn.. 8)

Ég og Kadý skelltum okkur svo á ÍA - KR á laugardaginn og auðvitað unnu okkar menn. Eg var svo bara mjög róleg og tók að mer næturvakt um nóttina. Það var heví stuð hjá mér og Elsu, ég tók fartölvuna með og vorum bara að hlusta á tónlist á fullu, svo kom e-h fólk inní sjoppuna og við hækkuðum tónlistina og það sagði að það væri bara meira stuð hjá okkur heldur en á Mörkini, en það þarf víst ekkert mikið til:haha:

Jæja.. Eg var e-h að hugsa hvað ég ætti að skrifa meira en ætla ekkert að hafa þetta lengra af því að SUMIR vilja ekki lesa löngu færslurnar mínar:p hehe en já þetta er komið flott í bili...  Vi ses, Helga :)


» 18 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 16:15:12 / helgai

Smá svona.. :)

Hæ hó.... ég er veik heima, hafði nákvæmlega ekkert að gera og ég sá þetta á e-h bloggi þannig að ég ákvað að gera svona líka..

Annars er ekkert að frétta af mér.. ég bara farin að blogga á hverjum degi... nokkuð gott.. hvað ætli ég endist lengi? ? ? :haha:

 

Hefuru?..

 

(x) reykt sígarettu
( )klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki 
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum(ha ég??? ;)) 
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico (Langar það samt!)
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x
) farið á skíði (sem sagt í snjó) (fíla snjóbretti miiiiiklu meir=)
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
( ) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni 
( )borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til( húff púff.. þið sem vitið hvað ég meina!! :S)
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x)  fundist þú vera að deyja(Ekki bókstaflega, samt svona eins og hjartað sé að springa...=o. )
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
( )borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
(x) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x)hefur einhver óska þinna ræst
( )farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti

 

Langaði bara að deila þessu með ykkur hehe..... ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 23:41:14 / helgai

Nýjar myndir....:)

Nýjar myndir komnar inn..!  Fullt af flottum myndum, frumsýningarpartíið, e-h böll og fleiri!


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 10:49:21 / helgai

Flott er! :)

Jæja, önnur helgin yfirstaðin og við tekur ein önnur, miður skemmtileg skólavika. Það styttist samt óðum í langþráð páskafrí. Helgin var bara mjög róleg, stutt í skólanum á föstudaginn og svo gerðist ég besta systir í heimi og fór að hjálpa Hagalín að þrífa íbúðina sína, hann er að fara að leigja hana út til e-h portúgala sem eru að vinna hérna, það komu tveir af þessum gaurum uppí íbúð meðan við vorum að klára og þeir voru ekki eins perralegir og slísí eins og gaurarnir sem maður sér alltaf út í sjoppu eða klípandi í rassinn á stelpum á Mörkinni. Um kvöldið tók ég svo smá rúnt og fór svo með Eddu, Kristjönu og fleirum á mörkina og það var bara mjög skemmtilegt... Bjóst ekki við því að það yrði skemmtilegt á mörkinni, það voru samt mjög sætir strákar á mörkinni en maður var bara rólegur fyrst ég var edrú. Tók svo rúnt með Eddu eftir mörkina og skuttlaði 3 flottum gaurum heim, en þeir eru á föstu.. leiðinlegt? ;)
En vil bara segja að Edda Ósk er æðisleg stelpa og mér þykir mjög vænt um hana! :)

Á laugardaginn fór ég að vinna til 7 og þá skunduðum ég, Bergþóra og Karí í bíó suður. Fórum á Rent og ég var bara búin að heyra e-h smá um hana en svo var hún svo skemmtileg að ég er að fara á hana aftur með Ernu minni hehe:) Voru bara svo flott lög og atriði í henni. Svo létum við Bergþóra okkur dreyma um að setja þennan söngleik upp á næsta ári hérna í skólanum... Væri gaman!! :)
Svo gátum við ekki gert neitt eftir bíó af því ég tók að mér næturvakt. Var aðeins of sein en Elsa elskan vann fyrir mig þangað til...

Á sunnudaginn fór ég frekar illa sofin niðrí bíohöll þar sem var sýning á leikritinu kl 3. Það mættu 20 manns á sýninguna kl 3 og hún var svona frekar léleg, fólk ennþá veikt og bara heldur ekkert gaman að sýna fyrir 20 manns í 200 manna sal! 
En á sýningunni kl 8 var uppsellt! Sýningin þá tókst líka ógeðslega vel og það var líka bara geðveikt gaman að leika og syngja þá!
Vil bara þakka fyrir hvað fólkið í salnum var rosalega aktívt og átti stóran þátt í hvað sýningin tókst vel!

Eg er búin að segja mig úr einu fagi í skólanum, landafræði. Mér og kennaranum kom bara ekki saman og e-h. Kannski aumingjalegt af mér að halda þetta ekki út en ég nennti ekki að vera í tímum hjá kennara sem er bara með móral út í vissa nemendur...!
Held að þetta sé komið gott.. Þangað til næst.. Helga! :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 17:12:02 / helgai

New York, New York! :)

Good day everyone! :) Ég er að bíða eftir að komast á leiklistaræfingu og er búin að öllu eiginlega sem ég get gert áður en ég fer.. var mega dugleg, þvoði allan þvott og braut hann saman, ryksugaði og tók til..!  Ég er víst húsfreyjan þegar mamma er að spóka sig í New York!  Hún hringdi í gær og var að segja mér hvað hún væri búin að versla á sig og mig og e-h og ég fékk sjokk...8| Hún á ekkert að vera að versla svona á mig.. ætla samt að borga henni e-h af þessu þegar hún kemur heim..
Annars er bara ekkert að frétta af mér nema það að það er allt á fullu í leikritinu, skólanum og núna þessa viku líka á heimilinu.. ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað það væri erfitt að vinna þessu húsverk... Ég er bara mjög stolt af móður minni!
Spurning hvar verður Eurovision partí um helgina:lol: Ég ætla allaveganna að detta í það á laugardag.. vill e-h vera memm? 
Þeir 70 eða fleiri sem koma og skoða síðuna mína daglega.. viljiði kvitta annaðhvort í gestabók eða í komment á færslum... væri gaman að vita hvaða margir eru að skoða síðuna...:)
Nenni ekki að hafa þetta lengra... er farin að leika Marilyn (Fanney) Monroe! :D

» 18 hafa sagt sína skoðun

10.02.2006 08:50:47 / helgai

Róleg helgi..?

Hellú... er í íslensku og á að vera að gera verkefni, en er búin með minn helming og Steinar og Birkir redda restinni! ;) Allt gott að frétta af mér, var engin leiklistaræfing í gær og flottheit, fékk allveg langþráða hvíld. Var bara heima og bakaði pizzu með múttu, geðveikt góð þótt ég segi sjálf frá8) Svo var bara gott í sjónvarpinu og ég chillaði bara yfir tölvunni og e-h...

Helgin er framundan og ég held að það verði bara rólegheit sko. Vinna á laugardaginn frá 12-7 og svo aftur frá 8-11 og svo aftur á sunnudag þannig þetta verður fínt, nota helgarnar til að fá pening af því þetta leikrit tekur bara ALLAN tímann á virkum dögum. Hera, hundurinn hans Hagalíns og Eddu er snillingur, ég elska hana út af lífinu, þótt hún taki einn skó af og til og smakki aðeins á honum þá er hún bara krútt! :haha:

Þessi vika er nú samt ekki búin að vera neitt til að hrópa húrra fyrir, búið að vera soldið vesen og leiðndi, en ég vona að það sé bara búið og ég geti farið að snúa mér að e-h nýju og skemmtilegu, einbeita mér að sjálfri mér og vinum mínum einna helst.

Var að koma í frímínútur og Ásdís og Linda sitja hliðiná mér, þær eru NAKTAR!  OMG! labba bara um eins og þær eigi heiminn sko, sjæsinn.. þær eru samt svo miklar fox að það horfa allir á þær eins og barn horfir á sleikipinna! :haha:
Eníveij... þá ætla ég að fara að minga við fólkið hér í kring...
Síja leiter hómís! :klikk:

Helga...


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 10:43:22 / helgai

Klukk!

Það er alltaf e-h svona nýtt klukkdæmi í gangi... en jæja fyrst að Karí klukkaði mig þá verð ég bara að gera þetta.. en já annars er allt gott að frétta af mér, brjálað að gera hjá mér í þessu leikriti, þreki og skólanum. Styttist óðfluga í frumsýningu og þar af leiðandi frumsýningarpartíi, þar sem ég ætla að fá mér í glas..! er ekki búin að detta í það síðan á áramótum og finnst mér það bara mjög merkilegt! :) Enívei.. þá verður helgin bara róleg held ég, vinna og leiklistaræfingar bara:) nema maður kíki í borg óttans í bío e-h eða þvíum líkt:)  En hérna er þessi klukk færsla!

4. störf sem ég hef unnið í um ævina:

Vinnuskóli Akraness

Norðanfiskur

Shell

Og svo auðvitað gelluvinnan Olís! ;)

4. bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur

Clueless

Mr & Ms Smith

Green Mile

Billy Madison

4. staðir sem ég hef búið á:

Sveitin! :)

Skólabraut 26

Vesturgata 134

og þar sem ég bý núna: Reynigrund 2

4. sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Sex and the city

Nip/tuck

Lost

Americas Next Topmodel

4. staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Kaupmannahöfn

Gautaborg

Akureyri

Sumarbústaðir víðs vegar um landið

4.síður sem ég heimsæki daglega:

www.leikjanet.is

www.blog.central.is/e-hskemmtilegur!

www.msn.com

www.b2.is

4 matarkyns sem ég held uppá:

Slátur

Pizza ala mamma!

Kjúlli

Chocolate!

4 bækur sem ég les oft:

Orðabækur

skólabækur

Njála

Macbeth

4. staðir sem ég vildi vera á akkúrat núna:

Besta stað á jarðríki, rúminu mínu

E-h staðar í sólarlöndum,

kannski uppí rúmi með ógó sætum strák! :lol:

Þjóðhátíð í Eyjum.

4. bloggarar sem ég ætla að klukka:

Heiðrún frænka!

Elínborg

Habbó

Högni

Jæja hérna er þetta komið! Síja leiter! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 14:40:09 / helgai

jáhá...

Good morning everyone.... how are you today? Ég er allaveganna ekki að standa mig í þessum blogg heimi.... enívei... þá erum ég, Stefán og Friðmey búin að vera að plana útskriftarferðina okkar sem verður farin um næstu áramót. Draumurinn er að fara til Mexico en málið er að það er kannski aðeins of dýrt.. og sérstaklega um jól og áramót þá er dýrara af því það er háannatími þarna úti.

Lífið hjá mér þessa dagana er mjög einfalt samt ógeðslega mikið að gera. Ég er á fullu í leikritinu og fer í þrek 9 sinnum í viku....:$ Tíminn sem ég eyði heima hjá mér er 20 mín í hádeginu, 10 mín eftir skóla (til að henda í mig mat og taka mig til í þrek) og svo svona 10 mín í kvöldmat og svo er ég komin heim á kvöldin svona um 10 leytið og fer þá annaðhvort á rúntinn eða beint í rúmið! 

Á föstudaginn ætla ég að skella mér á Max Grayham á Nasa, verður e-h klúbbakvöld þar og e-h skemmtilegt.. en ég ætla að vera edrú því ég er svo dugleg... ekki búin að drekka síðan á áramótunum... merkilegt nokk! ;)

Jæja ætla að fara að fylgjast e-h með í næringarfræði.. gott að vita þetta allt saman og það er svo merkilegt hvað maður er að setja mikið af óhollu ofan í sig sem manni datt ekki einu sinni í hug að væri óhollt.. jebb.. þannig er það nú...

Adios! ;)

Langaði að setja þessa mynd hérna inn af því þær eru svo sætar=) :P


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 21:40:21 / helgai

Nýjasta klukkið...:p

Þetta er allveg heví sniðugt dæmi... skrifið nafnið ykkar í comment og ég segi ykkur....:)

1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig

 2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

 3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

 7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!

Helga:D


» 107 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 00:48:33 / helgai

Söngur, dans, daður, lýsir helginni hjá mér og Karí í þremur orðum hehe...!

Hjelú...:)

Þessi helgi var bara hin ágætasta:p Föstudagurinn var bara rólegur.. átti að fara í lærdóm en það breyttist aðeins... Kíkti bara smá rúnt og svo heim að sofa. Svo á laugardaginn vaknaði ég smá snemma og fór að læra.. Kíkti svo til Fanneyjar og hún gerði mig sæta og fína fyrir kvöldið, setti í mig voða fína slöngulokka og það var mjög flott hjá henni fannst mér... Svo var leiðinni haldið á Broadway á jólahlaðborð og sýninguna þarna Nínu og Geira... Þetta var rosalega flott allt saman, sýningin var ógeðslega flott.. Ein konan úr vinnunni hljóp uppá svið til Björgvins Halldórssonar, ætlaði bara að taka eitt tjútt við hann en nei.. það komu tveir öryggisverðir á harðaspretti á eftir henni og reif hana af danssgólfinu.. Gaman það hehe..! :)

Var allveg með fiðring í maganum alla sýninguna, langar að taka þátt í svona sýningu í framtíðinni.. væri gaman?!?! :) Eftir sýninguna þá áttum ég og Karí dansgólfið.. gjörsamlega vöktum eftirtektir ungra sveina á gólfinu hehe..:p Við ákváðum að fara ekki heim með rútunni og fólkinu í Norðanfisk heldur skelltum okkur niðrí bæ á meira djamm.. kíktum á Oliver og það var bara STAPPAÐ!! hittum  samt allveg fullt af skemmtilegu fólki..:) Vorum svo allveg búnar á því eftir þennan kingimagnaða dans okkar og gátum ekki labbað og "sumir" löbbuðu bara á tánum niður laugaveginn.. ekkert að spá í glerbrotum eða e-h því um líkt! :P Við komumst að þeirri niðurstöðu að fyrst við gátum ekki labbað þá ætluðum við ekki einu sinni að reyna að dansa meira þannig við hringdum bara í farið okkar. Kíktum inn á Pravda til að hlýja okkur, hann kom svo að ná í okkur og einn vinur minn fékk far heim..:)

 Ohh svo var hann svo æðislegur að stoppa í Subway fyrir okkur á leiðinni heim og við Karí fengum langþráðann Subway og ég steinsvaf svo mest alla leiðina heim..:)

Vil þakka Möllu og Unnir fyrir flottar vögguvísur í bílnum á leiðinni heim hehe! :)

Fór svo bara að vinna í dag og var e-h að reyna að lesa fyrir próf í vinnunni, gekk e-h mis... en núna er ég að rembast við að lesa fyrir enskupróf.. úff þessi vika verður strembin.. fer í 6 próf á 5 dögum í röð! verð bara að standa mig vel og allt þannig..:)

Ætla að henda mér inn í rúm... síj'all...:P

Helga: Out..:!:


» 61 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 00:13:11 / helgai

Good day..=)

Fór til Reykjavíkur í dag með Fanney og vorum að versla... Ég keypti mér draumastígvélin(hehe) og ákvað að prufa þau og var að labba á þeim í smáralindinni þegar hællinn bara DATT AF!!!
Ég átti ekki til aukatekið orð og ég og Fanney stóðum bara þarna agndofa! hehe svo liðu svona 5 sekúndur og þá sprungum við úr hlátri.. ég meina samt 14 þúsund króna stígvél og þetta fer svona!! jiminn!! En ég fór beinustu leið niðrí skór.is og sagði þeim þetta og hún sagðist ekkert vera hissa, það hefðu fleiri komið með þessi stígvél og þá hefði þetta sama skeð fyrir þau.. Ég fékk í alvörunni bara vægt sjokk en konan ætlar að senda þá í viðgerð og vonandi verð ég búin að fá þá fyrir laugardaginn af því þá fer ég á jólahlaðborð á Broadway..:haha: Verð nú að vera smá fín..8)
Allaveganna þurfti ég að skilja skóna eftir í búðinni en ég var ekki með neina aðra skó nema í bílnum og ég labbaði bara í gegnum alla smáralindina á NÆLONSOKKUM hehe... við vorum í hláturskrampa alla leiðina út í bílinn.. það leit út eins og ég væri geðveikt fátæk og hefði ekki efni á skóm! Nýbúin að spreða 14 þús í stígvél heh.. Fólk horfði á mig eins og e-h bjána! Var að spá í að djóka í því og biðja það að gefa mér pening fyrir nýjum skóm.. hehe hafði það ekki í mér:p
En manneskja dagsins og vikunnar hjá mér er hún Fanney mín.. Af því hún er svo sterk og yndisleg manneskja... Hún á aðeins það besta skilið og hún fær það.. er allveg 100% á því...:D
Ég er farin að hallast að því að ég ætli ekki út fyrr en eftir næsta sumar.. Þá á ég nóg af pening til að fara með út og get skemmt mér vel og unnið mikið í sumar.. finnst það aðeins viturlegra... svo langar mig líka svo mikið að vera með í leikritinu sem verið er að setja upp í skólanum á næstu önn..:) Svona er nú það:p
Prófin að hefjast og mér líður eins og skólinn sé bara búinn að vera í mánuð! þetta er ótrúlegt.. ætla að skella mér í lærdóminn og reyna að vera sem duglegust=) Svo bara Sálarball 16 og kannski held ég uppá afmælið mitt þá bara.. sé til hvernig stemmningin verður og svoleiðis..=)
Blelli...
Helga Felga:)


» 59 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 15:55:31 / helgai

Góðan dag, góðan dag, glens og grín það er mitt fag! hopp og hí, tralla lí, upp á nefið nú ég snýýý! ;)

Good morning people

Það líður alltaf svona mánuður liggur við á milli færsla hjá mér... það er heldur ekkert gaman að lesa blogg þar sem það skeður ekkert bitastætt á.. ég meina ég geri það sama eiginlega alla daga, fer í skólann, læri heima, fer í þrek, legg mig, horfi á e-h skemmtilegan þátt í sjónvarpinu og fer annaðhvort á rúntinn eða í tölvuna hehe... þetta er rosalegt... Ég get hér með sagt ykkur að þetta verður bara svona nokkurskonar helgarblogg.. blogga bara svoona tvisvar til þrisvar í viku eða e-h.. nei ég veit ekki, ætla ekki að gefa nein loforð hér.

Kennararnir eru að fá algjert flipp.. ég er að fara í 3 próf á fimmtudaginn, í  íslensku þar sem ég þarf að klára heila bók, ensku þarf ég líka að klára heila bók og svo er frönsku próf þar sem ég þarf að læra 30 spurningar eða svo... þetta verður rosalegt... en maður verður bara að leggja harðar af sér... 8|

Í gær fór ég á leiklistarnámskeið, ég ætlaði fyrst ekkert á það en svo þegar ég frétti að maður yrði að fara á þetta ef maður væri skráður í leiklistaráfangann á næstu önn.. en ég fór á þtta og þetta varð bara heví gaman sko... vorum bara að leika okkur og leika og syngja og dansa... Fín tilbreyting í mitt daglega líf..! :lol:

Um helgina fór ég í afmæli til Ásdísar á föstudag, fór svo aðeins á rúntinn með Bergþóru.. Fór svo að vinna kl 6.. djamm djamm djamm.. ! Gaman eins og ávallt..:!:

Um kvöldið fór ég til Fanneyjar skvísípæju og gerðum okkur fínar og sætar af því við vorum að fara að djamma :p fórum til RVK með þeim krúttum Bergþóru og Karí af því þær voru svo elskulegar að skutla okkur.

Fórum svo á Pravda og án gríns við sáum fallegasta gaur í heimi.. eða allaveganna í langan tíma. Hann var bara heví fine, dansaði allveg klikkað flott og var bara georgeous....:$ Það voru samt fullt af ógeðslegum gaurum sem voru bara að hrella allar stelpur þarna..!

Svo voru Steinar og Malló að vinna á Nelly’s og við fengum far með þeim heim kl 7.

     Ég komst að því í dag að það vantar au-pair út til Lúxemborg. Ég veit ekkert hvað ég á að gera, hvort ég á að fara til Lúxemborg til stelpnanna sem ég þekki þar, og íslenskt fólk þar að auki, eða til Frakklands sem ég yrði örugglega hjá franskri fjölskyldu, myndi ekki þekkja neinn, en ég myndi læra frönskuna og vera í Frakklandi eins og ég vil... þetta er allveg spurning sko..!

En ég fer út.. það er bara spurning:

Lúxemborg = vera í góðra vina hópi og hjá íslenskri fjölskyldu?

Frakkland = Þekkja ekki neinn, vera hjá franskri fjölskyldu en kunna frönsku??!!?:$

     Ég hugsa málið.. langar að prufa að sækja um til Frakklands og sjá hvar ég myndi geta verið, því ef ég myndi fá að vera í Nice, St.Tropez, Cannes eða e-h því um líkt þá myndi ég pottþétt fara þangað!! En ef ég fengi í e-h littlum bæ inní miðju Frakklandi þá yrði ég að sjá til. :S

Ætla ekki að hafa þetta lengra... er að vonast til að geta komist á Typpatal í kvöld, reyna að redda mér fríi í vinnunni til að komast.. verð svo að fara að skella mér í ljós.. er orðin ansi hvít á brá.. J Svo er NýDönsk ball á föstudag og svo er aðalmálið 16 des.. en þá er Sálin á Breiðinni og ég verð lögleg á það ball, þarf ekki að ljúga að greiið dyravörðunum.. thíhí;)

En já.. Voyez-vous ! J

 

Helga :haha:



 

 



 

 



» 79 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 22:19:12 / helgai

Bonjour...! Buon giorno..! Buenos días...! Good morning..! =)

Góðan daginn fólk..:)

Ég sit hér og á að vera að læra undir félagsfræðipróf en er bara ENGANN veginn að nenna því hehe..

Skólinn er búinn að vera the same þessa vikuna.. Kennararnir tilkynntu okkur það samt í dag að það væru bara 3 vikur eftir af kennslu..! ég fékk vægt sjokk..8| kann svo lítið í þessum áföngum mínum að það er ekki normal:!: Verð að fara að gera e-h í þessu... Samt búin að vera dugleg að mæta núna undanfarið... Búin að hækka smá í mætingu og allt á góðri leið hehe..!:lol:

Ég fór á leikritið Hunangsflugur og villikettir í gær með Lindu og mér fannst það mjög skemmtilegt sko.. Það var samt frekar líkt Frelsi sem jafnaldrar mínir í grundaskóla gerðu fyrir 3 árum en mér fannst þetta samt skemmtilegra, skemmtilegri lög og sumir krakkarnir voru að fara á kostum þarna..! Eftir það kíktum ég og Linda rúnt og svo sofnaði ég vært og rótt kl 12 eða svo.

Í dag var ég bara í skólanum og svo fór ég að vinna aðeins niðrí Norðanfisk, fer aftur á morgun og svo á laugardagsmorgun..! Víbbí!! Eða hvað...? hehe:haha:

Úff ég fór í fyrsta ljósatímann minn á mánudaginn í bara hálft ár eða e-h.. ég var líka farin að líta út eins og næpa sko.. En er farin að sína smá lit eftir tímann á mánudag og ég skellti mér líka í kvöld..:) Horfði svo ANTM og djöful er Keenyah farin að fara í taugarnar á mér úff púff.. og Brittany eða hvða hún heitir... :klikk:

Ég ætla ekkert að hafa þetta miklu lengra fyrst hin færslan var allveg milljens löng sko...

Eitt sem ég vil deila með ykkur....:p Ég ætla að fara á föstudaginn og sækja um Au-pair í Frakklandi...:D Linda mín ætlar að vera elskuleg og koma með mér svo ég gugni ekki á þessu... Svo er planið að fara í bío og e-h eftir á..;)

Það eru allir búnir að vera svo elskulegir og hjálpa mér að ákveða og svoleiðis þannig ég vil bara segja TAKK! :D

Jæja ætla að drulllast til að læra..:!::!:

Buenas noches..! Bonne nuit..! Buonanotte...! (Góða nótt):D


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2